laugardagur, 14. júní 2008

Fótbolti-afmeyjun-listatékk

Ha ha ha ha.... ég sagði það..... Hollendingar tóku Frakkland í bossann og það var mér gífurlega mikil ánægja að horfa á það. Þeir unnu Ítali 3-1 og tóku svo Frakkana hvorki meira né minna en 4-1, algjörlega heimsklassa fótbolti og ef Hollendingar verða ekki Evrópumeistarar þá veit ég ekki hvað.... En annars er ekkert áhugavert að frétta úr vesturbænum, ég horfi á fótbolta á hverjum degi og bíð nú reyndar spennt eftir að fara í höllina á sunnudaginn kl:4 með Urðinni minni að horfa á Íslendinga sópa gólfið með andliti Makedóna. Hmm.. já ég hef aldrei áður farið á landsleik í handbolta sem er alveg fáránlegt miðað við hvað ég elska að horfa á handbolta, fór í fyrsta skipti á landsleik í fótbolta 2006 líka með Urði og var nú heldur betur komin tími til að afmeyja frökenina á því sviði líka. Ýmislegt svona stöff sem ég á eftir að gera og er alveg fáránlegt að ég sé ekki búin að gera en listinn er alltaf að verða styttri, nokkuð mörg atryði sem ég get strikað yfir bara á þessu ári, frekar stór atryði, það verður að teljast nokkuð gott bara:)
Over & out
Hrönn.

fimmtudagur, 12. júní 2008

Lífið er fótbolti


Mér leiðist... EM er í gangi núna eins og kannski svo margir vita og það er æðislegt, 2 leikir á dag núna þegar riðlakeppnin er og ég vildi óska að það væru fleiri leikir á dag, nenni sko ekki að gera neitt annað en að horfa á fótbolta þessa dagana. Á milli leikja bora ég í nefið, reyki, drekk kaffi og læt mér leiðast. Það er eins og ég sitji á varamannabekknum og horfi á leikinn(lífið) og ég iða í skinninu mig langar svo að vera með en einhvernvegin tekst mér að komast undan því þegar ég er beðin um að vera með. Anyway, ég hef ákveðið að halda með Hollendingum á EM, langt síðan ég hef séð til Hollendinga spila svona ferskan, hnitmiðaðan og skemmtilegan fótbolta og get ekki beðið eftir að sjá þá taka Frakka í r....... á föstudaginn.
ja ja, yfir og út,
Hrönn.

sunnudagur, 1. júní 2008

Afmæli og ólympíuleikar....
















Óla systir mín á afmæli í dag, til hamingju með daginn yndislegust... OG OG OG verð að láta það fljóta með að rétt í þessu var íslenska landsliðið í handbolta að valtra yfir svía í leik um sæti á ólympíuleikunum í Peking 2008, ja man við erum að fara á ólympíuleikana... Til hamingju Óla og til hamingju Ísland....

Barcelona








Jæja þá er að verða vika síðan ég kom heim frá Barcelona, best að tjá sig eitthvað um þetta allt saman og ekki BARA setja inn myndir þó það sé nú gaman. Ég tók um 900 myndir, það er slatti og vildi óska að ég gæti sétt þær allar hérna inn en you know... Já draumurinn rættist og ég fór loksins til Barcelona og fór að sjálfsögðu fyrsta daginn að skoða Sagrada Família kirkjuna mína og get með ENGUM orðum líst því sem ég upplifði þegar ég sá hana með berum augum, þvílíkt og annað eins undur. Við fengum nú ekki besta veðrið en létum það sko ekki stoppa okkur og vorum á ferðinni alla daga og löbbuðum í 8-10 tíma á dag og nokkra daga 12 tíma og hef ég aldrei á ævinni verið svona þreytt í fótunum og varð bara að gjöra svo vel og fjárfesta mér í 8000 kr Ecco skóm því ég var hætt að geta stigið í lappirnar, var farin að dreyma um að láta Söndru Maríu keyra mig um í hjólastól... Óla systir flaug yfir til okkar frá Kanarí og var hjá okkur í 6 daga og það var náttúrulega bara algjört æði, vildi bara að hin tvö systkinin hefðu verið þarna líka, það hefði nú orðið meira partýið...
Óla hafði ekki hugmynd um hver Antonio Gaudí væri þegar hún kom til Barcelona og þið getið bara rétt ímyndað ykkur svipinn á henni þegar við sýndum henni kirkjuna og get ég fullyrt það að hún sé nú orðin aðdáandi líkt og hinar systurnar... Við vorum fastagestir á Starbucks kaffihúsum borgarinnar, sérstaklega á einum stað það sem var hægt að sitja úti fyrir okkur reyk systur you know og afgreiðslu maðurinn þar var yndislegur og hefði sjálfsagt heilsað mér með nafni ef hann kynni bara að bera það fram:) Annað uppáhalds Starbucks kaffihúsið mitt var hjá Sagrada Família kirkjunni, afgreiðslu daman þar var yndisleg og svo ótrúlega fögur, væri til í að opna Starbucks á íslandi með hana á bakvið afgreiðsluborðið:) En hvað um það, hmm... Við fórum á Picasso safnið, skoðuðum Casa Batlló en eitt meistaraverk Antonio Gaudí, fengum okkur starbucks, fórum í Gaudí garðinn, fengum okkur starbucks, tókum lest í um klukkutíma og skoðuðum Montserrat munkaklaustrið og fórum í kláf upp að klaustrinu, alltaf dreymt um að fara í kláf, fengum okkur starbucks, versluðum pínu, fórum út að borða, fengum okkur starbucks, skoðuðum Sagrada Família aftur, fengum okkur starbucks, löbbuðum í gamla bænum, fengum okkur starbucks, fórum í sædýrasafnið að heimsækja Nemó og Dóru og sá mörgæsir, guð hvað þær eru sætar..., fengum okkur starbucks, löbbuðum í gamla bænum, fengum okkur starbucks, skoðuðum gallerí, fórum út að borða, fengum okkur starbucks, löbbuðum í gamla bænum, löbbuðum og löbbuðum og löbbuðum... endaði ferðina með stæl, síðasta daginn tókum við lest í klukkutíma í Port Aventura skemmtigarðinn og já ég fór í tívolí, stæðsti rússíbani í evrópu, fokk ég er ekki lengur tvítug og hann var aðeins of mikið fyrir mitt litla hjarta.... en þetta var alveg geðveikt, fórum í rússíbana sem var nú miklu styttri en sá stóri og fór á 135km hraða á 3 sek og það var algjörlega brjálað adrenalín búst, fórum 2x í hann og gátum ekki hætt að hlæja, hefði farið oftar í hann en það var víst komin tími til að koma sér aftur til borgarinnar og út á flugvöll. Algjörlega æðisleg ferð og þá er bara að byrja að safna fyrir næstu, hmmm.. eða já þegar ég er búin að borga vísa reikninginn:)

föstudagur, 16. maí 2008

sunnudagur, 11. maí 2008

Barcelona


Ég er að fara til Barcelona á morgun, ég er ekkert alveg að trúa þessu og er alveg óvenjulega róleg yfir þessu öllu saman. Sandra María byrjaði að pakka á föstudaginn og ég er ekki einu sinni byrjuð. Hjartað byrjar örugglega að pumpa hraðar þegar ég kem út á völl á morgun. Fyrir 10 árum síðan bjuggu ég og Dagný systir saman og hún var í frumgreinadeild í Tækniskólanum. Í einhverju fagi þurfti hún að gera heimildaritgerð og Sandra María stakk upp á að hún gerði ritgerð um "Antonio Gaudi", sem ég vissi þá ekkert um. Þar sem Dagný lærði alltaf í stofunni þá fór þetta nú ekkert framhjá mér og ég fékk þetta allt beint í æð og sá í fyrsta skipti mynd af einu frægasta verki hans, kirkjunni "Sagrada Família". Upp frá því hef ég verið með þessa kirkju á heilanum, fór mjög reglulega á netið til að finna myndir af henni og skoða, láta mig dreyma. Ég er í alvörunni að fara að skoða hana núna á næstu dögum, hver hefði trúað því, ekki ég.... Kirkjan er nú reyndar bara toppurinn á ísjakanum þar sem það er svo ROSALEGA margt að skoða og upplifa í þessari fallegu borg. Ég er ekki frá því að hjartað sé farið að pumpa aðeins hraðar núna þegar ég skrifa þetta:)