mánudagur, 21. maí 2007

Gullkorn.

Mér hefur ekki mistekist. Ég hef fundið 10.000 leiðir sem ganga ekki
upp.

Ég myndi vilja lifa eins og fátækur maður með fullt af peningum.

Lífið er allt of mikilvægt til að vera tekið alvarlega.

Þeir gætu ekki hitt fíl á þessu fær...
andlátsorð Johns B. Sedgewick hershöfðingja

Fötin skapa manninn. Bert fólk hefur lítil sem engin áhrif í
samfélaginu.

Allir kettir eru gráir í myrkri.

Hugurinn er eins og fallhlíf - hann er aðeins nothæfur þegar hann
er opinn.

Ég elska Mikka mús meira en nokkra konu sem ég hef þekkt.

Ég gef skít í þann sem getur aðeins stafað orð á einn veg.

Mér líkar vel við svín. Hundar líta upp til okkar. Kettir líta niður
á okkur. Svín koma fram við okkur sem jafningja.

Álit almennings veltur á því hvað almenningur heyrir.

Neytandinn er ekki auli. Hann er konan þín.

Ef Guð væri ekki til, væri nauðsynlegt að finna hann upp.

Nú er það svart, það er ljóst.

Kynlíf milli karls og konu getur verið dásamlegt - ef þú kemst milli
rétta karlsins og réttu konunnar.

Ef Guð gæti bara gefið mér eitthvert ótvírætt merki! Eins og að
leggja háa fjárhæð inn á svissneskan bankareikning í mínu nafni.

Að reyna er fyrsta skrefið í átt að mistökum.

Ég kem upp og við elskumst klukkan fimm. Ef mér seinkar skaltu bara
byrja án mín.

Öruggasta merkið um að vitibornar verur sé að finna á öðrum hnöttum
er að þær hafa ekki reynt að hafa samband við okkur.

Að vera í viðskiptum án þess að auglýsa er eins og að blikka stúlku
í myrkri. Þú veist hvað þú ert að gera en enginn annar veit það.

Jafnvel minnsta stjarna skín skært í myrkrinu.

Raunveruleikinn er blekking sem skapast af alkóhólskorti.

Það er dýrt að búa á jörðinni en því fylgir ókeypis ferð kringum
sólina.

Það eru aðeins dauðir fiskar sem synda með straumnum.

Já já, en annars er bara tussu veður og rjóma kúlur eru alveg málið,
kv
Yolanda bitch troll from hell, he he he..........................

fimmtudagur, 17. maí 2007

I feel oooold.............

Ég fór á ball í gær, hahhh... þokkalega og það þykir nú víst saga til næsta bæjar.
Ég hringdi í vinkonu mína í gær og spurði hana hvort hún ætlaði að fara og viðbrögðin voru frekar skemmtileg, orðrétt " á dauða mínum átti ég frekar von en að þú hefðir áhuga á að fara", já ég er orðin gömul og leiðinleg:)
Það var semsagt gay ball á kaffi reykjavík í gær til styrktar gay pride 2007, dj Páll Óskar sá fyrir hávaðanum sem hljóðhimnur mínar bíða aldrei bætur og raddböndin mín eru ekki upp á sitt besta eftir að reyna að tala/garga á fólk sem mig langaði að "spjalla" við, jamm ég er ekki lengur tvítug.
Ég hitti ekki mikið af fólki sem ég þekki, nokkrar fallegar manneskjur sem mér finnst alltaf gaman að hitta og knúsa en annars var húsið fullt af litlum gay börnum sem voru eftlaust að klára að opna fermingarpakkana en outfittið og hegðun átti ekkert skilt með þeirri athöfn:), t.d bleikt hár, svart naglalakk, ótrúlega vampírulegt meik up, rifnar sokkabukkur og í þokkabót svartir vængir og þegar þau fóru nú öll að dansa upp á borði við hliðina á mér fannst mér komin tími á heimferð:)
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil:)
Kveðja Yolanda Monsoon old person with bad smelling dripple piss.