föstudagur, 16. maí 2008
þriðjudagur, 13. maí 2008
sunnudagur, 11. maí 2008
Barcelona

Ég er að fara til Barcelona á morgun, ég er ekkert alveg að trúa þessu og er alveg óvenjulega róleg yfir þessu öllu saman. Sandra María byrjaði að pakka á föstudaginn og ég er ekki einu sinni byrjuð. Hjartað byrjar örugglega að pumpa hraðar þegar ég kem út á völl á morgun. Fyrir 10 árum síðan bjuggu ég og Dagný systir saman og hún var í frumgreinadeild í Tækniskólanum. Í einhverju fagi þurfti hún að gera heimildaritgerð og Sandra María stakk upp á að hún gerði ritgerð um "Antonio Gaudi", sem ég vissi þá ekkert um. Þar sem Dagný lærði alltaf í stofunni þá fór þetta nú ekkert framhjá mér og ég fékk þetta allt beint í æð og sá í fyrsta skipti mynd af einu frægasta verki hans, kirkjunni "Sagrada Família". Upp frá því hef ég verið með þessa kirkju á heilanum, fór mjög reglulega á netið til að finna myndir af henni og skoða, láta mig dreyma. Ég er í alvörunni að fara að skoða hana núna á næstu dögum, hver hefði trúað því, ekki ég.... Kirkjan er nú reyndar bara toppurinn á ísjakanum þar sem það er svo ROSALEGA margt að skoða og upplifa í þessari fallegu borg. Ég er ekki frá því að hjartað sé farið að pumpa aðeins hraðar núna þegar ég skrifa þetta:)
laugardagur, 10. maí 2008
Andlát/dauði
Yolanda Monsoon lést í morgun úr aðgerðarleysi. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir og verður jarðarför auglýst síðar. Þeir sem vilja minnast hennar gera það bara...í hljóði...ekki hér...
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)