miðvikudagur, 10. janúar 2007

Stjörnumerki mánaðarins

Steingeitin er geit.
Leiðinda frek steingeit.
Svona geit sem lítur út fyrir að vera gömul og svikul.
Þeir hengslast upp fjallið jájá, með öllum þeim undirförlu og andstyggilegu trikkum sem þeim dettur í hug.
Og svo eru þær með uppkrulluð horn, alveg eins og djöfullinn sjálfur.
Steingeitur nota og misnota þig á alla mögulega vegu til þess að fá sínu framgengt.
Þeim er alveg sama þótt þær þurfi að éta sorp eða þótt það taki óralangan tíma, þær skulu bara ná sínu fram.
Steingeitin stjórnast af Satúrnusi, hinni eilífu föðurímynd.

Jamm þokkalega, aðeins öðruvísi stjörnuspá en í morgunblaðinu og allt það og svo sjáum við bara hvað er sagt um vatnsberan þegar þar að kemur, It just gets better:)

Engin ummæli: