Dýrahringurinn byrjar á Hrútnum og endar á Fiskunum. Byrjar illa og endar enn verr, fer úr kjafthætti og frekju yfir í væmni og óákveðni. Talandi um að fara úr öskunni í eldinn, alla leið frá hræðslulausri rollu yfir í rollulegan fisk !
Hrútsmerkið er rolla, ég meina karlkyns rolla þ.e. hrútur. Rollulegheit er aftur á móti ekki að finna í eðli Hrútsins (sjá frekar fiskinn). Frekja er í eðli hrúta, ójá. Rollur segja Meeee. Hrútar segja Meeeeeessaðu EKKI í mér.. og þú ættir að sleppa því ! .. hornin geta meitt. Allir hrútar eru ýtnir og halda að þeir viti allt betur en aðrir og þeir ryðjast alltaf á undan í röð.. tramp tramp, skvamp og ýt ýt, komast áfram, vera fyrstir - jebb, það er best að koma sér bara úr veginum. Hrútsmerkið stjórnast af Mars, sem er guð af "Ég vinn, þú tapar"-heimspekinni.
Þar sem ég er nú fiskur þá ætla ég að leyfa þeim að fljóta með:)
Fiskamerkið ... hmm, fiskur ? Eða, eiginlega tveir fiskar að synda í gagnstæða átt- alltaf týndir. Fólk í fiskamerkinu lifir í stöðugum ótta vegna þess þeir vita að hættulegar fiskaætur leynast alls staðar ... fylgist bara með því hvernig þeir skjótast um, snarruglaðir og illa fyrirkallaðir. Fiskar geta ekki verið á beinu brautinni í tvær sekúndur og þú þarft ekki annað en að henda út gómsætri beitu þá eru Fiskarnir mættir á sekúndubroti, tilbúnir að bíta á agnið. Auðveldir þessir Fiskar nefnilega
(eiginlega eins og rollur), Fiskarnir stjórnast af Neptúnusi, guði friðar, ástar og
ruglings.
þriðjudagur, 27. mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli