fimmtudagur, 17. maí 2007

I feel oooold.............

Ég fór á ball í gær, hahhh... þokkalega og það þykir nú víst saga til næsta bæjar.
Ég hringdi í vinkonu mína í gær og spurði hana hvort hún ætlaði að fara og viðbrögðin voru frekar skemmtileg, orðrétt " á dauða mínum átti ég frekar von en að þú hefðir áhuga á að fara", já ég er orðin gömul og leiðinleg:)
Það var semsagt gay ball á kaffi reykjavík í gær til styrktar gay pride 2007, dj Páll Óskar sá fyrir hávaðanum sem hljóðhimnur mínar bíða aldrei bætur og raddböndin mín eru ekki upp á sitt besta eftir að reyna að tala/garga á fólk sem mig langaði að "spjalla" við, jamm ég er ekki lengur tvítug.
Ég hitti ekki mikið af fólki sem ég þekki, nokkrar fallegar manneskjur sem mér finnst alltaf gaman að hitta og knúsa en annars var húsið fullt af litlum gay börnum sem voru eftlaust að klára að opna fermingarpakkana en outfittið og hegðun átti ekkert skilt með þeirri athöfn:), t.d bleikt hár, svart naglalakk, ótrúlega vampírulegt meik up, rifnar sokkabukkur og í þokkabót svartir vængir og þegar þau fóru nú öll að dansa upp á borði við hliðina á mér fannst mér komin tími á heimferð:)
Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil:)
Kveðja Yolanda Monsoon old person with bad smelling dripple piss.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert ekkert gömul, hinir eru bara svo helv.. ungir, er það ekki? það er allavega tilfinningin sem ég ´fæ þegar ég fer út, það er líka nokkuð um eldra fólk (eins og okkur) sem eru bara svo ung í anda;) En við erum ekki lengur ungar í anda og leiðist þetta allt saman. Farðu svo endilega að hringja til baka þegar ég hringi í þig það er nú ekki svo oft.
Love Rósa

harpa sagði...

dripple piss!?!?!?!

En vá hvað þetta hljómar allt kunnuglega. skellti mér á skemmtistað um daginn og eftir tæpa 2 tíma -kl 00:30 stundvíslega fórum við hjónaleysin aftur heim. Alveg búin á því. Nenn'iggisona..

Rósa.. Hrönn hefur aldrei verið sérlega flink á síma ;)

Svetly sagði...

..Hrönnsan á dansiballi - djö er ég ánægð meþig "gamla" ;)

Ásdís Rósa sagði...

já! það er ekkert öðruvísi!! kaffi?