Eins og allir vita þá verða slys á heimilum, það t.d kviknar í. Misjafnt út frá hverju kviknar í t.d eldavélum, þvottavélum, kaffivélum, allskonar rafmagnstækjum, stundum út frá kerti og sígarettum og svona you know.
Mér tókst held ég að toppa þetta allt saman þar sem ég kveikti í blóminu mínu, wtf... Allt í góðu, allir heilir(ég) og allt í lagi nema parketið mitt sem komu nokkrir brunablettir á.
Þetta er algjört kraftaverk að ekki skyldi hafa brunnið ofanaf mér þar sem ég var ekki heima, heldur sat ég á fundi og var í alvöru að hugsa um á tímabili að ég þyrfti nú að fara að vökva þetta eina aumingja blóm sem ég á, ironic ha......
Þetta gerðist á mánudaginn og ég var að klára í gærkvöldi að þvo allt sem ég þurfti að þvo til að losna við lyktina, föt, rúmföt, allar gardínur, teppi, bara allt sem mögulega kemst í litla tryllitækið mitt sem ég kalla þvottavél:)
Þannig ekki skilja eftir reykelsi í blómi sem hefur ekki verið vökvað í mánuð, mæli ekki með þeirri áhættu, ég er snillingur og fer ekkert ofanaf því eða undir það, gæti kannski verið aðeins til hliðar, hmmm....
En annars er tussu veður en það skiptir mig engu máli þar sem ég er með ferska tónlist í eyrunum og kann að klæða mig eftir veðri:)
Sólskinskveðjur úr vesturbænum þrátt fyrir rigningu og rok.
Kv ms.Monsoon
fimmtudagur, 27. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
..ég "urlast" úr hlátri í hvert einasta skipti sem að ég hugsa til þess að þú hafir kveikt í blóminu þínu...
...þú ert nú meiri snillingurinn!!
vá ég vissi ekki að þetta væri hægt!!
Frábært að sjá að það er að lifna yfir blogginu :) þú ert nefnilega svo skemmtileg!!
Skrifa ummæli