Jæja gott fólk þá hef ég nú eitthvað að blogga um........
Ég tók þátt í að gæsa vinkonu mína í gær og ég held bara svei mér þá að ég hafi aldrei skemmt mér eins vel:) Dagurinn byrjaði á að við mættum heim til hennar, ruddumst inn með gæsaflautum, látum og söng, held að hún hafi næstum fengi hjartaáfall he he. Við klæddum hana í skátabúning frá 1940 og eitthvað, man ekki alveg en hún tók sig alveg stjörnu vel út í átfittinu:) Við fórum með hana í kringluna þar sem hún átti að gera könnun á því hvaða árgerð af frímerkjum fólk héldi að væri best á bragðið, átti náttúrulega að gera hana að fífli en það tókst engan vegin þar sem stelpan er bara natural leikari og fílaði sig bara í botn og gaf okkur hinum bara hlátur og brosverki.
Hápunktur dagsins að mínu mati var þegar við fórum í paintball þar sem við fengum að skjóta hvor aðra og drita gæsina niður í kanínubúning, fengum reyndar leiðinda veður en það skipti mig ekki svo miklu máli það var of gaman til að vera að pæla í veðrinu......
Svo var farið heim, skrúbbað af sér skítin og gúffað í sig mat frá Nings og dress up for the next event þar sem var farið með gæsina á Goldfinger í einkashow sem við hefðum nú bara betur sleppt að gera þar sem hún fékk ekkert út úr þessu og talaði ekki um annað en hvað hún vorkenndi þessu stelpu greyi og vildi bara fara með hana á stígamót:) En hvað um það svo fórum við á ölver og daman tók 2 lög, ekki tóks heldur að gera hana að fífli þar, hún tók bara dansspor og fílaði sig í tætlur, held nú samt að hjartað hafi slegið ansi hratt, ég myndi náttúrulega bara kúka í mig og grenja sjáiði til:)
En jæja svo tók bara næturlífið við þar sem var rölt á milli ölstofu, 7-9 13 og q-bar, 7-9-13 er nýr staður á klappastígnum sem kom mér mikið á óvart og ég bara mæli algjörlega með honum.
Og já ekki má nú gleyma að segja frá því að Ég hin hræðilega edrú manneskja var í algjöru banastuði í gær og dansaði bara fullt, það er bara gaman að dansa edrú, allir búnir að segja mér það og ég veit það en ég fékk að upplifa það í gær sem er bara hin mesta snilld:)
Jæja nú ætla ég að hætta þessu, ef ég ætlaði að segja frá öllu sem gerðist í gær og fór í gegnum kollin á mér þá yrði ég hérna í alla nótt að skrifa:)
Yfir og út en aðalega upp samt.........
ms.Monsoon
sunnudagur, 23. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
*úúú*
Hljómar vel - gott að þú/þið skemmtuð ykkur svona vel...og gaman að heyra/sjá að þú hafir dansað gamla mín ;)
lovjú!
æ sæta :) takk æðislega fyrir daginn :) þú gleymdir samt að ég dansaði magadans líka á Q bar :) hihihihihi knús til þín
Je dúdda mía......... hvernig gat ég gleymt magadansinum:) En hér með kemur það fram að gæsin dansaði snilldarlega magadans á q-bar við lag með Shakiru:)
Takk sömuleiðis fyrir frábæran dag og kvöld.
Skrifa ummæli