fimmtudagur, 11. janúar 2007

Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr..........

Mér er kalt og mig vantar almenninglega skó til að troðast í þessum snjó.
Fleira var það ekki í bili.
Kv Snjóla M

miðvikudagur, 10. janúar 2007

Stjörnumerki mánaðarins

Steingeitin er geit.
Leiðinda frek steingeit.
Svona geit sem lítur út fyrir að vera gömul og svikul.
Þeir hengslast upp fjallið jájá, með öllum þeim undirförlu og andstyggilegu trikkum sem þeim dettur í hug.
Og svo eru þær með uppkrulluð horn, alveg eins og djöfullinn sjálfur.
Steingeitur nota og misnota þig á alla mögulega vegu til þess að fá sínu framgengt.
Þeim er alveg sama þótt þær þurfi að éta sorp eða þótt það taki óralangan tíma, þær skulu bara ná sínu fram.
Steingeitin stjórnast af Satúrnusi, hinni eilífu föðurímynd.

Jamm þokkalega, aðeins öðruvísi stjörnuspá en í morgunblaðinu og allt það og svo sjáum við bara hvað er sagt um vatnsberan þegar þar að kemur, It just gets better:)

Árið árið........

Ég er ömurlegur bloggari:)
En hvað um það, gleðilegt nýtt ár öll sömul og takk fyrir það gamla. Ég er flutt........ og það er æði, lítil og ógeðslega krúttleg stúdió íbúð á Túngötunni sem er fínt fyrir svona miðbæjar kaffihúsa rottu eins og mig:) 6 mínútur að labba á fund og eitthvað álíka að rúlla í bæinn góða. Árið 2007 leggst vel í mig, nýir, breyttir og góðir tímar framundan og viti menn ég skráði mig í eitt fag í fjarnámi og ætla þar með að standa við gefið loforð og læra spænsku:) Jæja nóg í bili, er að vinna í að koma nettengingunni minni HEIM til mín, víííí ég á aftur heimili....... og þá verð ég duglegri að skrifa:)
Kveðja Yola M.