Keðjubréf já, kannski frekar hótunarbréf hmmmm....
Svetly sendi mér póst um daginn og bað mig vinsamlegast að hætta að senda sér þessi blessuðu keðjubréf, fyrst var ég pínu móðguð sko en fór svo að pæla og ræða málin við gangandi vegfarendur eða þannig þið vitið og komst bara að þeirri niðurstöðu að það er ekki verið að gera neitt annað en að hóta manni.
Ef ég sendi bréfið ekki áfram þá verð ég annaðhvort ógeðslega óheppin, óhamingjusöm, engin ást, verð gjaldþrota, algjörlega heilsulaus, to sum it up bad things will happen to me.......svo má ekki gleyma að þessar keðjur eru yfirleitt búnar að ganga síðan 1700 og eitthvað:)
Ef ég sendi nú bréfið og þá þarf ég nú yfirleitt að senda það á einhvern ákveðin fjölda, því fleiri er vist betra þá bankar the love of my life uppá hjá mér innan sólahrings kannski hringir hún, ég vinn í lottóinu og verð hamingjusöm það sem eftir er, huhhh það er ekkert smá, hvaða litla meðvirka hjarta vill slíta svona keðju.
GUBB GUBB GUBB gubbulíus ég er hætt að taka þátt í þessu, ég ætla að hætta að senda fólkinu mínu þetta bull, ég legg þetta ekki á mig né aðra lengur og vill hér með, í góðu samt byðja ykkur að hætta að senda mér svona póst:)
Ég þarf að rækta mína eigin hamingju, ást, lukku og allt það í mínum eigin garði og hún kemur því miður ekki í gegnum internetið:)
love
Yola M
föstudagur, 8. desember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
djæsus kræst !!! loksins sagdi einhver thetta upphátt, eda ætti kannski ad segja á prenti... madur bara thorir varla ad ekki senda svona rusl áfram af hallæris ótta vid ad ganga aldrei út og verda fátæk og óhamingjusøm thad sem eftir er...lol.. en allavega thúsund thakkir fyrir heidarleikann og mikid obboslega verd ég fegin ad fá ekki fleiri svona ruslpósta... thats sem thad er sko eiginlega bara thú kæra Yolanda sem sendir mér slíka ;)
kvedja úr baunalandi
úgg
Haf.
Takk fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun því ég fæ alltaf allt tvö fallt, frá þér og frá Hafrúnu. Ef ég á að vera alveg heiðaleg þá sendi ég mjög sjaldan eitthvað áfram,ég er ennþá lifandi og ekkert hræðilegt hefur hent mig þótt því hafi verið hótað í einhverju bréfi.
Love Rósa.
*klappklapp* (ég stóð upp og klappaði fyrir þér..)
..ætlaði nú samt ekkert að særa þig sko ;)
Skrifa ummæli