Jæja er ekki komin tími til að gubba einhverju á blað....
Færslan um helvítis fiskana(mig) á náttúrulega að vera búin að synda hérna inn á blað en tölvan mín, barnið mitt þurfti að fara í viðgerð og öll mín gögn eru inná henni.
Ég fékk aftur á móti þessa fínu hp tölvu lánaða sem virkar fínt:)
Móðir mín hringdi í mig áðan og færði mér frábærar, skemmtilegar og mjög spennandi fréttir............ hún tók þá ákvörðun ásamt pabba að þar sem frumburðurinn þeirra er að fara að flytja til Kanarí í ágúst á þessu ári þá ætla þau að bjóða mér til Kanarí í 30.afmælisgjöf, sem er þá eftir rúmlega ár, ætla að reyna að ná 29 fyrst sko...
Ekki leiðinlegt það sjáiði til en það sem mér fannst mest skemmtilegt við þetta símtal var að mamma mín var svo spennt að hún var eins og lítið barn að fá nammi í fyrsta skipti:)
En annars er bara allt ágætt af mér að frétta, er að reyna að læra spænsku í fjarnámi og það er vibba gaman en rosa erfitt, mikið að læra, muna á stuttum tíma en það er allt í lagi, það er ekki eins og ég hafi eitthvað annað að gera:)
Það er pínu kalt en mjög fallegt veður í Reykjavík núna:)
Sólskins kveðjur með bros á vör úr vesturbænum,
Adiós, hasta luego.
Yola M.
laugardagur, 24. febrúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
..estoy super orgullosa de ti amiguita - espero que lo sepas!!! :)
http://mbl.is/mm/frettir/myndskeid.html?file_id=14200
oh.. pant koma með til kanarí!! skrapp þangað í 2ja daga ferð í fyrra.. hefði mátt vera lengra en ég náði þó að hitta skemmtilegt fólk :)
Stórt knús til þín á ..eh.. túngötuna? (mís forgetsful)
og hola guappa! -svona nokkurn veginn öll mín spænskukunnátta í einum frasa.
Feliz Cumpleaños vieja ;)
Skrifa ummæli