sunnudagur, 19. nóvember 2006

Gleðilegan vetur.......

Já veturkonungur varð lasinn af öllum þessum kulda og gubbaði yfir borgarbúa, bíleigendum á sumardekkjum til mikilla vandræða, þetta skapar ekki mikil vandræði fyrir mig þar sem ég ferðast um á tveim jafnfljótum og strætó og er því ekki föst neinstaðar og kemst ferða minna án teljandi vandræða.
Jákvæðni, það er alltaf hægt að sjá eitthvað jákvætt út úr öllu og það jákvæða sem ég sé hér er að frostið minnkar þegar snjórinn lætur sjá sig og skíðafólk tekur gleði sína á ný.
Skíðafólk já, ég var nú einu sinni ein af þeim en í dag skíða ég á milli kaffihúsa eins og argasta borgarbarn sem aldrei hefur stigið fæti út fyrir borgarmörkin.
Sveitalúðinn innra með mér er farinn að garga á frelsi og heimtar að fá að vera partur af lífinu mínu á ný, það er komin tími til að tína saman spilin, stokka vel og lengi og leggja í nýjan kapal gott fólk.

kv Yolanda

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

..þú ert og verður alltaf "lítill sveitalúði" Yolý mín - held bara að hann hafi orðið pínu veðurteftur, já eða veðurhefur...gott að hann er lagður af stað aftur...
...djö er Pollýanan að koma sterkt inn þessa dagana - "Pollýana rúlar" ;)
Kúldaknús
Svetly