Kuldahóran ræður ríkjum í borginni í dag, mér og öðrum til mikilla ama og vöðvabólgu.
Klæðnaðurinn er mest megnis bara hallærislegur, oldy skíðafatnaður tekinn fram til að
halda lífi og geðheilsu í lagi.
Það er nefnilega þannig með mig og hefur alltaf verið, ég verð svo afspyrnu geðvond
þegar mér verður mjög kalt, æðruleysi gagnvart kuldanum er ekki einu sinni komið
það langt að vera í vinnslu:)
En annars er ég núna at this moment mjög sátt á brennslunni með góðan latte og það er
ekki kalt hérna inni, jamm eins og þið sjáið þá er ég í algjöru þráhyggjuástandi yfir
þessum kulda.
En yfir í allt annað, hjartans þakkir fyrir commentin, fyrstu commentin á nýja blogginu
mínu veiiii....... nú skil ég allt þetta comment væl og ég skal vera duglegri að commenta á
síðunum ykkar, lofa:)
Fyrir ykkur single gellurnar tékkið á þessum, hevy flottur gaukur og hann er á lausu..... www.istanbul.tc/mahir/mahir/
kv Yolanda
föstudagur, 17. nóvember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli