fimmtudagur, 14. desember 2006

Veðurfréttir eða ekki...

Það er ekta ekta skíðaveður í dag, kalt, stillt, sól og ég gæti hreinlega drepið fyrir það eitt að vera stödd í fjallinu núna.

Það væri samt mjög góð byrjun á þessu ferli öllu saman að eignast skíði hmmm...

Í fyrst skipti sem ég fór í skíðabrekku með lyftu fór ég með systur minni sem nennti ekki lengur að hlusta á vælið í mér og leyfði mér að koma með, frænka mín var þarna með okkur og hún fór á undan okkur í lyftuna og ég og systir mín þar á eftir og þar sem þær voru nú með lítið gerpi þarna með sér á plastskíðum sem aldrei hafði farið í brekkuna áður fóru þær ekki alveg á toppinn.
Mjög líklega ætlaði systir mín að fara með mig niður í klofinu eins og svo oft er gert við lítil börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í brekkunni en það fór ekki alveg þannig, á meðan þær voru að laga sig til og gera sig reddí til að renna sér niður þá verður systur minni litið í átt til mín þar sem ég er komin á fleygiferð niður brekkuna og stafirnir mínir fljúga út í loftið, ég kunni ekkert að nota þá og þeir voru bara fyrir mér og ég vildi fara hratt og leyfa annarri manneskju að hjálpa mér, kenna mér, ég held nú síður, geri þetta sko bara sjálf, my way, kannski skemmtilegt að taka það fram að ég kunni ekkert að stoppa heldur og stoppaði bara á fólkinu sem stóð í röð við lyftuna:)

Skíðaárin mín voru voða mikið svona, ég var sjálfri mér og öðrum frekar hættuleg í skíðabrekkunum, ég er fædd spennu og adrenalínfíkill og fékk sko góða útrás fyrir því á skíðum.
Mér tókst sem betur fer aldrei að skaða aðra manneskju með látunum í mér en hef nokkrum sinnum verið borin niður úr fjallinu þar sem ég hef dottið illa og fengið MÖRG slæm höfuðhögg og já gott fólk þar liggur helvítis hundurinn grafinn, þarna er ég komin með ástæðuna fyrir afhverju ég er eins og ég er í dag:)

Kv Yola M

7 ummæli:

Svetly sagði...

Góða ferð austur engillinn minn - takk fyrir kaffið, spjallið og knúsið...mundu nú að "kyssa" Bjólf frá mér...


....thank god þá fyrir öll höfuðhöggin segi ég barasta - annars værirðu einhver önnur en þú ert í dag og það myndum við ekki vilja ;)

harpa sagði...

Hahahaha!! Ég sé þig alveg fyrir mér.

þér er hér með boðið í kaffi á garðarsveginum!!

Svetly sagði...

..jæja ?!?!?

Hafrún sagði...

YOLANDA !!!!!! HALLÓ !!!!
hvar í andsk... ertu...mar´bara verdur trheyttur á ad lesa alltaf sama bloggid.... ;)

Hafrún sagði...

YOLANDA !!!!!! HALLÓ !!!!
hvar í andsk... ertu...mar´bara verdur trheyttur á ad lesa alltaf sama bloggid.... ;)

Nafnlaus sagði...

þú þarft nú að hífa þig upp á rassgatinu í þessu bloggi. Er ekki hægt að blogga á hressó?

Svetly sagði...

...heyrðu "dýri" þú hefur frá mörgu að segja - ég veit það...koma svo bloggaðu litla mín...segðu okkur sögur af Túngötunni og nýja kotinu, pælingar um fræin sem þú sáðir - hvernig gengur garðyrkjan..ertu búin að jafna þig af flensunni??
....VAKNA!!! :)