Ég er búin að vera með tölvuna með mér á kaffihúsi núna á hverjum degi og er alltaf að fara hingað inn á leiðinn að fara að skrifa eitthvað svaka sniðugt en það bara gerist ekki neitt, ég veit bara andskotann ekkert um hvað ég á að skrifa svo ég ákvað bara að skrifa um það, skemmtilegt ekki satt:)
Ég er alltaf að skamma baunann minn fyrir að vera ekki nógu dugleg að skrifa svo ÉG hafi nú eitthvað að lesa sjáiði til en er ekki að skrifa neitt sjálf og er ekki ennþá búin að segja neinum að ég sé með blogg, ég er ágæt.
Þannig að núna þegar ég er búin að gubba þessu frá mér ætla ég að senda ykkur mail með slóðinni á blogg thingið mitt og sjáum svo bara hvað verður úr því.
kv Yolanda.
fimmtudagur, 16. nóvember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
.....þú ert svo miklu meira en ágæt! Ég er ánægð með þetta bloggframtak þitt! Bloggaðu bara um allt sem þig lystir, fólkið á næsta borði á kaffihúsinu, veðrið, hversu gott diet coke er etcetc. :)
Koma svooo!
til hamingju með rafrænu doppurnar! :)
ef ég kommenta hér geri ég kröfu á að fá það endurgoldið á mitt blogg!!!!!!
skrifaðu um það þegar þið heiðrún áttuð eins bláar dúnúlpur og þrömmuðuð eins og brjálaðir mafíósar um "miðbæ" seyðisfjarðar.. Eða um steina.. ca 30 sérvalda steina ;)
ánægð með framtakið. hlakka til að sjá meira.
Vííí.........
takk fyrir commentin, en hver er
enamorada????
Skrifa ummæli